Mörg járn í eldinum og rauði dregillinn með Jason Momoa Elísabet Hanna skrifar 5. september 2022 20:00 Hera og Jason glæsileg á frumsýningu þáttanna ,,See" frá Apple TV+. Getty/Jon Kopaloff Stórstjarnan Hera Hilmarsdóttir fer með hlutverk Helgu í kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu þar sem hún leikur á móti Þorvaldi Davíð og Anítu Briem. Hún fer einnig með hlutverk í þáttunum „See“ frá streymisveitunni Apple TV+ þar sem hún leikur meðal annars á móti Jason Momoa.
Svar við bréfi Helgu „Hún er eldheit ástarsaga sem gerist á ströndum svona 1940 á Íslandi. Hún fjallar um Helgu og Bjarna sem verða ástfangin en eru bæði gift. Þau byrja í duldu ástarsambandi, sem svo verður náttúrulega mikið og flókið, og fjallar um það hvað lífið getur verið stundum ekki nákvæmlega það sem við viljum að það sé og hvernig við dílum við það,“ segir Hera um myndina Svar við bréfi Helguí Bítinu. Myndin var frumsýnd á Íslandi um helgina en sérstök hátíðarsýning fór fram undir lok síðustu viku. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Bergsvein Birgisson. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=MI4Mj7ii884">watch on YouTube</a> Fékk að opna á sér hjartað Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstýrði myndinni með miklum glæsibrag. „Hún leyfði okkur að fara í ferðalag þar sem við fengum í rauninni að opna hjartað okkar og gefa það í myndina,“ segir Hera um leikstjórn Ásu. Upplifunina segir hún hafa verið skrítna því hún hafi sjaldan náð jafn mikið að renna frá og opna hjartað og sjá hvort að það gangi fyrir hlutverkið. View this post on Instagram A post shared by Hera Hilmar (@herahilmar) „Í lífinu, maður verður bara að vera eins og maður er og við erum öll svo ótrúlega messy að það í rauninni þýðir ekkert að vera feimin yfir því,“ segir hún um upplifunina að opna sig og að vera mennsk. Leikur á móti Jason Momoa Hera segir vera mikinn mun á verkefnunum Svar við bréfi Helgu og þáttunum See en hið síðarnefnda sé mörg hundruð manna verkefni á meðan færri einstaklingar komu að kvikmyndinni. Á því tímabili sem See hefur verið tekið upp blómstraði einnig ferill samleikara hennar. „Jason varð einhvern veginn stórstjarna á meðan við vorum að taka upp þessa seríu,“ segir Hera. „Hann er bara mjög skemmtilegur og mjög stór karakter. Við erum náttúrulega bara góðir vinir og unnum saman í fjögur ár og allt það en þú veist já hann er líka bara mjög skemmtilegur karakter.“ View this post on Instagram A post shared by Hera Hilmar (@herahilmar) Skrítið að vera í tökum í miðju Covid „Við tókum upp tvær seríur án þess að stoppa sem er eiginlega klikkað, það er bara sextán mánaða vinna án þess að stoppa.“ Hún segir það hafa verið strembið á covid tímabilinu þar Covid test voru tekin tvisvar á dag og ekki mátti hitta neinn utan vinnu. Einnig var ekki í boði að fara heim en tökur fóru fram í Kanada sem var lokað allan tímann. Hera eyddi tímanum sínum því í almenningsgörðum, inni hjá sér og í vinnunni. View this post on Instagram A post shared by Hera Hilmar (@herahilmar) Í karakter á rauða dreglinum Hún segir það vera frekar óþægilegt að labba rauða dregilinn „en ef þú ætlar að gera það þarftu svolítið bara að gera það,“ bætir hún við. „Fara í eitthvað hlutverk og fara svolítið alla leið, finnst mér, og það er það sem ég gerði bara. Ég ákvað bara að njóta þess í botn og það var ógeðslega gaman. Nýlega gekk hún rauða dregilinn við frumsýningu þriðju þáttaraðar þáttanna See. Framundan er mikið af spennandi verkefnum hjá Heru sem má þó ekki deila þeim með aðdáendum sínum strax. Heru fannst gaman að labba rauða dregilinn.Getty/Jon Kopaloff Viðtalið úr Bítinu má heyra í heild sinni hér að neðan:
Bíó og sjónvarp Hollywood Bókmenntir Tengdar fréttir Jason Momoa og Lisa Bonet eru að skilja Jason Momoa og Lisa Bonet hafa sent frá sér tilkynningu um að þau hafi ákveðið að enda hjónaband sitt. Þau hafa verið gift í rúm fjögur ár en samband þeirra hófst árið 2005. 13. janúar 2022 10:04 Hera vakti athygli á heimsfrumsýningu See Leikkonan Hera Hilmarsdóttir fer með aðalhlutverk í nýjum þáttum framleiddum af Apple. 22. október 2019 09:45 Mest lesið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni Lífið Fleiri fréttir Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Sjá meira
Jason Momoa og Lisa Bonet eru að skilja Jason Momoa og Lisa Bonet hafa sent frá sér tilkynningu um að þau hafi ákveðið að enda hjónaband sitt. Þau hafa verið gift í rúm fjögur ár en samband þeirra hófst árið 2005. 13. janúar 2022 10:04
Hera vakti athygli á heimsfrumsýningu See Leikkonan Hera Hilmarsdóttir fer með aðalhlutverk í nýjum þáttum framleiddum af Apple. 22. október 2019 09:45